
Taktur í tónlist er mikilvægt fyrirbæri. Í dægurlagatónlist er það yfirleitt hlutverk trommu- og bassaleikara að halda föstum takti út allt lagið. Í sínfóníum er það stjórnandinn sem sér um að slá taktinn fyrir hljóðfæraleikarana.
Ef ekki væri taktur yrði skelfileg lífsreynsla að hlusta á stóra sinfóníuhljómsveit flytja tónverk. Menn myndu spila hver með sínu nefi, réttar nótur - en vitlausan takt. Hugsanlega væru básúnuleikararnir búnir með lagið og komnir í kaffi þegar flauturnar væru að klára!
Takturinn drífur einnig tónlistina áfram - er bensínið sem tónlistin þrífst á og kemst ekki af án.
Rétt eins og við flokkum ár í mánuði, mánuði í vikur og vikur í daga - er nauðsynlegt að brjóta lög niður í smærri hluta. Þannig er hvert lag flokkað í takta og hver taktur í slög.
| Ár |
Lag |
| Mánuðir |
Taktar |
| Vikur |
Taktslög |
| Sólardagar /
rigningadagar |
Tónar / þagnir |
Á þessari mynd getur þú séð hvernig taktar eru afmarkaðir.

Í fyrsta tóndæminu hér að neðan færð þú síðan að sjá og heyra nótur. Þarna er fiðla að spila fjórar tegundir af nótum. Heilnótur, hálfnótur, fjórðapartsnótur og áttundapartsnótur. Taktu eftir hvernig laginu er skipt í takta. Hlustaðu nú á tóndæmið og lestu svo áfram.
Í dæminu er hver taktur með fjögur taktslög. Taktslög eru ekki það sama og nótur. Á sumum taktslögum spilar maður ekki nótu - þá er þögn á blaðinu í staðinn fyrir nótu (sjá: næstu mynd).
Hér er smá lagbútur sem þú getur klappað með. Í þessu lagi telur þú allan tímann, ,,einn, tveir, þrír, fjór, einn, tveir...o.s.frv", en þú mátt ekki klappa þar sem er þögn.
Í næsta tóndæmi sérðu svo hvernig tvö hljóðfæri vinna saman. Eitt þeirra - sneriltromman - spilar allan tímann fjórðupartsnótur (ein nóta á hvert taktslag) - en marimban tekur stundum þagnir.
Að síðustu skulum við prófa flóknari útgáfu af síðasta dæmi - tökum nú þrjá parta og blöndum þeim að lokum saman í einn.
| P Ú L S I N N Oftast er eitthvað hljóðfæri sem sér um að gefa einhvern púls - t.d. með því að spila fjórðapartsnótur (ein á hvert slag) eða áttundapartsnótur (tvær á hvert slag). Hér er púlsinn í fjórðupörtum. |
S L A G V E R K I Ð Púlsinn verður auðvitað frekar leiðinlegur einn og sér, svo nauðsynlegt er að bæta einhverjum lifandi slagverksleik við. Þá er gott að notast við trommur úr trommusettinu, t.d. bassatrommu og sneriltrommu. |
T E N G I N G I N Síðast en ekki síst þarf að vera eitthvað sem tengir saman takt og laglínu. Yfirleitt er það hlutverk bassaleikarans að útvega þessa tengingu. Taktföst spilamennska í bland við skemmtilega tóna er það sem gildir. |
|
S A M L E I K U R Þegar þessum bútum er blandað saman verður til heild. Hér er þó einungis um grunn að ræða - því yfirleitt eru svo fleiri hljóðfæri sem bætast við það sem hér heyrist. |