Bongótrommur eru afró-kúbanskar, yfirleitt tvær trommur festar saman með trébút á milli þeirra. Á þær er spilað með fingrum og lófum og eru þær sérlega mikið notaðar í rómansk-amerískri danstónlist. Trommurnar eru úr tréi og eru opnar í annan endann.

Mynd I

Congatrommur eru langar, tunnulaga afró-kúbanskar trommur. Á þær er spilað með fingrum og lófum. Þessar trommur eru sérlega mikilvægar og megin taktgjafinn í conga-dance, sem er vinsæll dans af afró-kúbönskum uppruna.

Mynd II

Timbales eru rómansk-amerískar trommur með fremur háa tónhæð. Þær eru ekki ósvipaðar að stærð og lítil sneriltromma en eru opnar í annan endann. Þær eru yfirleitt settar á stand, tvær til þrjár saman.

Mynd III

Heimildir / Efst á síðu