Johann Christoph Denner heitir sá sem segja má að hafi fundið upp klarínettið. Um þetta má þó deila því hann gerði í raun ,,bara" nokkrar grundvallarbreytingar á hljóðfæri sem til var áður, Chalumeau.

Hljóðið sem kemur úr klarínetti myndast þegar blásið er í munnstykkið. Í stykkinu er reyrblað sem titrar og myndar hljóð sem hljóðfærið magnar upp. Það sem greinir þó klarínett frá öðrum tréblásturshljóðfærum er lögun þess.

Öll tréblásturshljóðfæri (utan við klarínett) eru keilulaga. Myndin hér til vinstri sýnir þá lögun - í ýktri mynd. Meira að segja flautan hefur þessa keilulögun, þó það sé erfitt að sjá það því víkkunin er svo lítil.. Meirihluti búksins á klarinetti eru hinsvegar sílenderslaga - eins og sést á myndinni hér til vinstri. Það er aðeins í bláendann (bjallan) sem keilulögunin verður áberandi.

 

 

 

 

Líkt Eins og hægt er að sjá á síðunum um óbó og fagott - eru þau tvíblöðungar. Klarínettið er einblaða, þ.e. aðeins eitt blað í munnstykkinu sem listamaðurinn fær til að titra með blæstri sínum.

Líkt og með önnur tréblásturshljóðfæri, er tónhæð stjórnað með því að opna eða loka fyrir göt á búk hljóðfærisins.

Mynd I

Klarinettuleikari við iðju sína.


Veit einhver hver þetta er?

Heimildir / Efst á síðu