Hljóðfærið píanó, mun vera um 300 ára gömul uppfinning. Upphaflega var það kallað ,,pianoforte". Forveri píanósins, semball, var þó fundið upp mun fyrr eða í kringum 1500. ,,Hamrar" klæddir dádýrsskinni sáu um að slá á strengina í samræmi við hvaða lykil (nótu) á lyklaborðinu hafði verið þrýst á - og flókinn búnaður sá um að þeir færu strax af strengjunum aftur svo þeir gætu titrað og gefið frá sér hljóð. Í dag eru hamrarnir klæddir flóka. Hér er góð hreyfimynd sem sýnir hreyfingu hamarsins.

Járnrammi er inn í öllum píanóum og á hann eru strengirnir festir. Spennan á strengjunum er gífurleg og því nauðsynlegt að ramminn sé úr járni - talað er um að spennan vegna strengjanna sé ígíldi 30 tonna í píanóum dagsins í dag. Áður fyrr voru rammarnir gerðir úr tré og því ekki hægt að strekkja strengina jafn mikið.

Þegar maður slær tenór- eða sóprannótu á píanói - slær hamarinn í raun á 2 - 3 strengi sem hljóma allir eins. Bassanóturnar hafa einungis einn streng hver. Þetta skiptir miklu máli þegar fótpedalar píanós eru útskýrðir.

Til hægri Lyftir flókadempurum af strengjunum og gerir það að verkum að þeir lifa mun lengur - tónninn heldur áfram að hljóma.
Í miðjunni Heldur uppi flókadempurum, einungis á þeim strengjum sem ýtt er á meðan pedalnum er haldið niðri.
Til vinstri Færir virkni hljómborðs og hamra til hliðar svo einungis einn af 2 - 3 strengjum tenór- og sópranstrengja lenda ,,undir hamrinum" og hljóma.

Á píanóum eru þrír pedalar sem stjórnað er með fótunum.

Í áranna rás tók píanóið miklum breytingum og sá útbúnaður sem framkallar hljóð þegar spilað er á nóturnar varð sífellt fullkomnari. Upphaflega voru það aðallega konur sem spiluðu á píanó þar sem nóturnar voru nokkuð fíngerðar og hentuðu illa stórum karlmannshöndum. Kröfur um píanó í sífellt stærri konsertsali urðu þó til þess að þau stækkuðu. Sagt er frá því að Beethoven hafi eitt sitt brotið eitt af fíngerðu píanóunum í tvennt með kraftmikilli spilamennsku sinni.

Mynd I

Hér sést inn í venjulegan flygil. Eins og sjá má er þetta afskaplega mikið strengjakerfi.

Mynd II

Hér sjást hamranir sem sjá um að slá á strengi hljóðfærisins þegar þrýst er á lykil á lyklaborðinu.

Heimildir / Efst á síðu