![]() |
Bjöllur, t.d. kúabjöllur, eru til í ótal stærðum og gerðum. Yfirleitt er slegið á þessi hljóðfæri með kjuðum eða sleglum og oft eru þau fest upp á sérstaka standa. Bjöllurnar eru yfirleitt holar að innan og eru yfirleitt gerðar úr málmi - en þó eru til bjöllur úr horni, gleri, leir eða tré. Eins og við munum átti meginhluti titringsins og hljóðsins sér upptök í miðjunni á gongi - en á bjöllum verður hljóðið aðallega til á brún hljóðfærisins. |
![]() |
Blokkir eða stokkar eru hol hljóðfæri
sem slegið er á með sleglum. Þau eru yfirleitt
úr tré eða málmi. Þau gefa frá
sér hvell hljóð sem oftast eru notuð sem gegnum
gangandi taktur eða til áhrifaauka í tónlist. |
![]() |
Chimes eða klukknahljómur eru hljóðfæri sem samanstanda af fjölmörgum, misstórum, holum járnpípum. Þær hanga í einhverskonar festingum, ýmist í beinni röð - eins og sést hér efst á þessari mynd - eða í hring - eins og sést á neðar á myndinni. Chimes gefa frá sér fallegan, draumkenndan hljóm og auk þess að vera vinsælt áhrifahljóðfæri - eru þau oft hengd upp utandyra og vindurinn látinn spila á þau. |
![]() |
Claves eru tréstangir sem
slegið er saman. Hvellt hljóð kemur úr þessu
hljóðfæri. |
![]() |
Hristur eru til í fjölmörgum
tegundum. Yfirleitt eru þetta holir stokkar eða pípur.
Í þá eru sett hrísgrjón eða annað
smálegt sem myndar hljóð þegar stokkurinn er
hristur. |
![]() |
Þríhorn eru
notuð nokkuð í sinfóníutónlist.
Tónn þeirra er bjartur og að mati margra, mjög
fallegur. Hljóðfærið er yfirleitt úr járni
og slegið er á það með járnstöng.
Hljóðfærið er yfirleitt ekki notað mikið
í hverju tónverki - en þar sem það kemur
inn er það yfirleitt mjög mikilvægur áhrifaauki.
|
Allar myndir á þessari síðu / Efst á síðu