Leiðbeiningar

Nauðsynleg / gagnleg forrit:

Til að sjá og hlusta á takta / nótur. Þessi tengill sendir þig á síðu þar sem þú ýtir á Download Scorch. Þú smellir þar á og ert beðinn í tvígang um að samþykkja að setja upp þessa vefviðbót. Samþykktu í bæði skiptin. Í sumum tilfellum þarf að endurræsa tölvuna til að þetta komi rétt inn.
Til að hlusta á Midi - Önnur forrit sjá líka um midi skrár, svo hugsanlega ertu með það sem þarf í tölvunni hjá þér. Skoðaðu vefkennslu mína varðandi að tengja skrár við forrit ef þú lendir í vandræðum.
Flash spilarann - fyrir Vefpíanó Baldurs. Yfirleitt ætti að vera óþarfi að ná í þennan spilara sérstaklega - IE vafrinn sér oftast um að láta þig vita að hann vanti og býðst til að ná í hann. Náðu í hann hér ef þetta gerist ekki og vefpíanóið kemur ekki á skjáinn.

Ýmislegt:

Ef orð eru með rauðu letri innan um svart getur þú fært músina yfir orðið og fengið nánari upplýsingar um efnið

Undirstrikuð orð eru yfirleitt hlekkir yfir á aðrar vefsíður, yfirleitt á Tónlistarvef Baldurs, sem búa yfir frekari upplýsingum

Eldveggir geta truflað ýmsa eiginleika þessarar síðu - ég mæli með því að slökkt sé á þeim meðan hún er skoðuð.