
Innan síðu: F-lykill / G-lykill / Aukalínur og tónhæð
Mannfólkið býr í húsum og margir eiga sér sitt eigið herbergi í húsinu sínu. Eins er það með nóturnar.
Þær eiga þó ekki heima í herbergjum í húsum, heldur eiga þær heima á línum í lyklum.
| Maður heitir nafni og á heima í... | Nóta heitir nafni og á heima á... | ||
|
...herbergi sem er í...
|
...húsi.
|
...nótnalínum sem eru í...
|
...lyklum.
|
| Þetta er F - lykill | |
| Þetta er G - lykill |
| F - lykill er aðallega notaður fyrir djúpar nótur |
| G - lykill er notaður fyrir háar nótur |
Hver nóta á sér ákveðinn nótnastreng - eða ákveðið bil á milli þeirra (herbergi). Nóturnar heita stafanöfnum (a, b, c, d, e, f, g, a).
Í F - lykli eiga nóturnar heima á þessum línum / bilum:

Eins og þú sérð eru nótnalínurnar fimm talsins og bilin milli þeirra eru fjögur.
Nóturnar sem eiga heima á línum eru:

En nóturnar sem eiga heima á bilum eru:

Til þess að auðvelda þér að muna þetta, getur þú búið til hjálparsetningar.
Nóturnar sem eiga heima í F - lykli og eru á línum - hjálparsetningin gæti t.d. verið:
Getur Bundin Dúfa Flogið Auðveldlega?
Nóturnar sem eiga heima í F - lykli og eru á bilum - hjálparsetningin gæti t.d. verið:
Afsakið Cesar, Ertu Gramur?
G - lykill |
Í G - lykli eiga nóturnar heima á þessum línum / bilum:

Rétt eins og í F - lykli eru nótalínurnar fimm og bilin fjögur.
Nóturnar sem eiga heima á línunum eru:

Nóturnar sem eiga heima á bilunum eru :

Prófum nú að búa til hjálparsetningar rétt eins og við gerðum áðan.
Nóturnar sem eiga heima í G - lykli og eru á línum - hjálparsetningin gæti t.d. verið:
Engin Geit Borðar Dauðan Fisk
Nóturnar sem eiga heima í G - lykli og eru á bilum - hjálparsetningin gæti t.d. verið:
Fékk Amma Cesars Epli?
(nóturnar á bilum G-lykils mynda líka orðið F A C E - andlit á ensku).
Aukalínur
- Tónhæð |
Meðal þess sem nóturnar segja okkur; er hæð tónsins. Nóturnar verða dýpri eftir því sem þær færast neðar á bil eða línur.
Ef við lítum aftur á myndina af bilnótum í G - lykli sjáum við t.d. að nótan F er dýpri heldur en nótan E.

Fyrir mjög djúpar - eða mjög háar nótur, eru notaðar aukalínur. Þær getur þú séð á myndinni hér fyrir neðan.
